Viðskipti
| Morgunblaðið
| 3.2.2009
| 6:27
Skattar greiddir af kauprétti í Landsbanka
Skattar og lögbundin gjöld voru greidd af kauprétti starfsmanna Landsbankans, að sögn Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, fyrrverandi forstöðumanns skattasviðs bankans. Þá segir hann að kauprétturinn hafi ekki verið framseldur til erlendra félaga.
Erlend félög áttu mikið af hlutabréfum í Landsbankanum, sem voru vistuð í löndum þar sem skattalöggjöf er hagstæð fjárfestum. Segir Kristján að þessi lönd hafi verið valin vegna þess að ekki var heimilt að stofna svokallaða sjálfseignarsjóði hér á landi. Sjálfseignarsjóðirnir áttu félögin sem keyptu hlutabréf í Landsbankanum á móti kauprétti starfsmanna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















