Stjórnin deildi áhyggjum Shearers varðandi Kaupþing

Tony Shearer, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander. stækka

Tony Shearer, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander. Reuters

Fyrrverandi stjórn Singer & Friedlander deildi áhyggjum Tony Shearers, fyrrverandi forstjóra, um að stjórnendur Kaupþings væru ekki hæfir til þess að stýra breskum banka. Hann segir Sigurð Einarsson hafa boðið sér stöðu stjórnarformanns í fyrirtækinu eftir kaupin, en hann sagði hins vegar starfi sínu lausu áður en til þess kom. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skriflegri yfrlýsingu Shearers sem lögð var fram í dag fyrir breska þingnefnd sem rannsakar m.a störf breska fjármálaeftirlitsins.  

„Aðal málið fyrir mér, þegar ljóst var að að Kaupþing myndi bjóða nægilega háa upphæð í reiðufé, var hvort breska fjármálaeftirlitið [FSA] og aðrar eftirlitsstofnanir myndu samþykkja að stjórn bankans yrði í höndum Kaupþings,“ segir Shearer í yfirlýsingunni.

„Mín stutta reynsla var sú að að stjórnendur Kaupþings væru ekki hæfir stjórnendur til þess að stýra breskum banka. Flestir, ef ekki allir stjórnarmenn Singer & Friedlander, deildu þessari skoðun minni með mér. Ég hafði áhyggjur af því að ef stjórnin samþykkti tilboð frá Kaupþing og fjármálaeftirlitið [FSA] hafnaði þeim sem óhæfum og ótilhlýðlegum stjórnendum, þá myndum við allir líta heimskulega út,“ skrifar Shearer.

Hann segist hafa haft samband við FSA og tilkynnt þeim sína skoðun. Aðrir stjórnendur Singer & Friedlander hafi einnig haft samband við FSA og lýst sambærilegum áhyggjum. Shearer segir að FSA hafi flýtt samþykki sínu fyrir yfirtökunni í gegn og  tilboð Kaupþings í bankann hafi því verið óskilyrt. Stjórnarskiptin gátu því átt sér stað óáreitt.

Regluvörður og yfirmaður áhættustýringar reknir fyrir að kvarta 
„Ég held að FSA hafi haft fullnægjandi upplýsingar um Kaupþing þannig að þeir hefðu aldrei átt að samþykkja stjórnarskiptin, og ef þeir ætluðu á annað borð að samþykkja þau þá hefðu þeir átt að framkvæma ítarlega frekari athugun á Kaupþingi. Einnig, ef niðurstaðan hefði orðið sú að samþykkja stjórnarskiptin þá hefðu þeir átt að fylgjast náið með því sem var orðið að Kaupþing Singer & Friedlander. Þeir hefðu átt að bregðast við þegar bæði yfirmaður áhættustýringar og regluvörður Kaupþings Singer & Friedlander voru seinna reknir fyrir að lýsa yfir áhyggjum sínum með það hvernig fyrirtækinu var stjórnað og sérstaklega afstöðu þess gagnvart áhættutöku,“ segir Shearer.

Shearer bendir á að Sigurður Einarsson hafi boðið honum stöðu stjórnarformanns hjá Kaupþingi Singer & Friedlander, eftir yfirtökuna. „Áður en tilboðið barst hluthöfum ákvað ég að segja starfi mínu lausu, eftir stuttan reynslutíma, á þeim grundvelli að ég var ekki tilbúinn að axla ábyrgð gagnvart breska fjármálaeftirlitinu á fyrirtæki sem var í eigu Kaupþings og þar sem stefnumörkun og daglegur rekstur var undir ríkum áhrifum frá þeim Íslendingum sem í hlut áttu. Í tilkynnti Sigurði Einarssyni þetta og yfirgaf Singer & Friedlander hinn 30. nóvember 2005,“ segir Shearer.

Frá skrifstofu Kaupþings Singer & Friedlander í Lundúnum.

Frá skrifstofu Kaupþings Singer & Friedlander í Lundúnum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir