Kreppan tungubrjótur Gordons Brown
Ófarir Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, halda áfram. Í dag varð honum það á að mismæla sig í þinginu og tala um að heimurinn væri í miðri kreppu sem hefur mátt heita bannorð í breskri efnahagsumræðu nú um stundir.
Forsætisráðherrann var í snarpri orðræðu í vikulegum fyrirspurnatíma sínum gagnvart breska þinginu þegar hann lét þau orð falla við þingheim, „að við ættum að sameinast sem heimur örvunaraðgerðir í peningamálum og ríkisfjármálum sem gæti komið heiminum út úr kreppunni (e. depression).“
Talsmaður í Downing Street sagði að mismælið hafi ekki verið „meðvitað og þetta er ekki það sem hann telur“.
Þó ekki sé til stöðluð skilgreining á því hvað kreppa sé, telja flestir hagfræðingar að samdráttur (e. recession) verði að kreppu (e. depression) þegar framleiðsla dregst saman um langan tíma og fari yfir 10%.
Formælandi efnahagsmála í skuggaráðuneyti Íhaldsflokksins, George Osborne, var snöggur til að krefjast skýringa á ummælum forsætisráðherrans.
„Forsætisráðherrann verður persónulega og tafarlaust að skýra hvort staðhæfing hans um að heimurinn væri í „kreppu“ hafi verið mismæli, eða hvort hann viti eitthvað sem við vitum ekki,“ sagði hann utan þingsins.
„Traustsins vegna verður hann að gera hreint fyrir sínum dyrum. Forsætisráðherrar verða að vera sérstaklega varkárir í orðavali til að grafa ekki undan trausti,“ sagði David Osborne.
Opinberar tölur hafa þegar sýnt að Bretland stendur frammi fyrir versta samdráttarskeiði frá því 1980 þar sem hagkerfið drógst saman um 1,5% á fjórða ársfjórðungi. Hagspár frá aðilum eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum gefa til kynna að meiri samdráttur verði í Bretlandi heldur en hjá nokkru öðru iðnvæddu ríki á yfirstandandi ári.



















