Vöruskipti í jafnvægi í janúar

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir janúar 2009 nam útflutningur 33,6 milljörðum króna og innflutningur fob 33,3 milljörðum króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna.

Hagstofan segir, að vísbendingar séu um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða og áls en meira verðmæti innflutts eldsneytis og hrá- og rekstrarvara í janúar 2009 miðað við desember 2008. Þá voru vöruskiptin hagstæð um rúma 24 milljarða króna.

Í janúar árið 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um tæpa 10 milljarða króna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK