Fréttaskýring: Skilanefndin taldi áform Baugs ekki vera raunhæf

Búið er að loka höfuðstöðvum Baugs við Túngötu. stækka

Búið er að loka höfuðstöðvum Baugs við Túngötu.

Morgunblaðið Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Skilanefnd Landsbankans taldi áform eigenda og stjórnenda Baugs Group um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins ekki raunhæf og ákvað því á þriðjudag að leggja fram beiðni um greiðslustöðvun BG Holding, dótturfélags Baugs Group, fyrir breskan dómstól.

Á meðal eigna BG Holding eru stærstu fjárfestingar Baugs í Bretlandi: Iceland Foods, House of Frasier og leikfangaverslunarkeðjan Hamleys. Yfir 50 þúsund manns starfa fyrir Baug í Bretlandi.

Heimildir Morgunblaðsins herma að viðræður milli skilanefndarinnar, sem er langstærsti kröfuhafi Baugs, og félagsins hafi ekki skilað neinu og því hafi verið ákveðið að grípa til aðgerða til að hámarka virði eigna. Þá vildi skilanefndin einnig verða fyrri til að leggja fram greiðslustöðvunarbeiðnina í Bretlandi.

Snýst um ökumannssætið

Sá aðili sem leggur fram greiðslustöðvunarbeiðnina fær nefnilega að skipa þá aðstoðarmenn sem stýra félaginu á meðan það er í greiðslustöðvun. Hefðu forsvarsmenn Baugs verið fyrri til að óska eftir greiðslustöðvuninni hefðu þeir fengið að skipa aðstoðarmennina. Beiðnin verður tekin fyrir á föstudag, klukkan tíu.

Heimildir Morgunblaðsins herma að forsvarsmenn Baugs hafi tekið útspili skilanefndarinnar afar illa. Stjórnendur félagsins brugðust enda við með því að óska eftir greiðslustöðvun fyrir félagið og nokkur dótturfélög þess, þar á meðal BG Holding, hér á Íslandi. Í tilkynningu frá Baugi vegna þessa segir að gripið hafi verið til þessara aðgerða í „kjölfar ákvörðunar Landsbankans í gær [þriðjudag] að hætta viðræðum um mögulega endurskipulagningu Baugs“. Sú beiðni verður tekin fyrir í dag.

Vilja greiðslustöðvun á Íslandi

Verði beiðnin samþykkt mun það þýða að núverandi stjórnendur munu áfram reka fyrirtækið og hafa umsjón með eignum þess í allt að sex mánuði. Fulltrúar skilanefndarinnar og Baugs funduðu í London í gær en sá fundur skilaði ekki neinni niðurstöðu.

Þó að reglan við uppskiptingu föllnu viðskiptabankanna í nýja og gamla hafi verið sú að útlán til íslenskra félaga væru í nýju bönkunum eru undantekningar frá þeirri reglu. Skuldir Baugs við Landsbankann og Glitni, eru til dæmis báðar í gömlu bönkunum og því á forræði skilanefnda þeirra. Ástæðan er stærð þeirra.

Öllum sagt upp á Íslandi

Baugur sagði upp öllum fimmtán starfsmönnum sínum á Íslandi í lok síðustu viku og tilkynnti að skrifstofu félagsins á Íslandi yrði lokað. Sömuleiðis yrði starfsmönnum félagsins í Bretlandi fækkað um helming, úr 29 í 16.

Gunnar Sigurðsson, forstjóri félagsins, sagði þá að verið væri að laga starfsemi Baugs Group að breyttum aðstæðum, enda væri stærsti hluti eigna félagsins í Bretlandi.

Hefur lítil áhrif á smásölu á Íslandi

Baugur Group var um tíma umsvifamesti smásöluaðili á Íslandi og átti hér tugi verslana undir ýmsum nöfnum. Flestar þeirra heyra undir eignarhaldsfélagið Haga sem reka meðal annars Bónus, Hagkaup, 10-11, Húsasmiðjuna, Blómaval og Útilíf.

Hagar voru hins vegar seldir til fjárfestingafélagsins Gaums í júlí síðastliðnum og því eru verslanir félagsins ekki hluti af þeim eignum sem eru undir í greiðslustöðvuninni. Eigendur Gaums eru Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir, systir hans, og foreldrar þeirra. Gaumur er einnig stærsti einstaki eigandi Baugs Group. Töluverðar breytingar voru einnig gerðar á eignarsafni Baugs Group í fyrravor. Þá færði félagið stærstu skráðu eignir sínar á Íslandi yfir í tvö systurfélög sem kallast Styrkur Invest og Stoðir Invest. Allar fjölmiðla-, tækni og fjarskiptaeignir Baugs fóru þá inn í Stoðir Invest. Þar á meðal voru eignarhlutir Baugs í 365 og Teymi, sem á meðal annars Vodafone.

Eign félagsins í FL Group, sem síðar var endurnefnt Stoðir, var rennt inn í Styrk Invest. Stoðir eru sem stendur í greiðslustöðvun.

Baugur Group skuldaði alls 201 milljarð íslenskra króna í árslok 2007 samkvæmt ársreikningi

Skuldir Baugs Group og dótturfélaga þess námu um 201 milljarði króna í árslok 2007. Þær höfðu þá aukist úr 102 milljörðum króna frá árinu á undan. Þetta kemur fram í nýlega birtum ársreikningi félagsins fyrir það ár. Engar opinberar upplýsingar eru til um núverandi skuldastöðu félagsins.

Samkvæmt ársreikningnum námu lánveitingar til Baugs Group alls 176 milljörðum króna og þar af áttu um 65 milljarðar króna að vera á gjalddaga í fyrra, tæpir 26 milljarðar króna í ár og 30 milljarðar króna á næsta ári.

Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, sagði í blaðagrein í Morgunblaðinu í lok síðasta árs að skuldir Baugs við innlendar lánastofnanir um mitt ár 2008 hefðu numið um 160 milljörðum króna.

Í ársreikningnum kemur einnig fram að Glitnir hafi veitt Baugi Group fimmtán milljarða króna víkjandi lán á árinu 2007 og að Kaupþing hafi veitt félaginu sambærilegt lán upp á 4,8 milljarða króna. Bæði lánin áttu að koma til greiðslu á árinu 2013. Fasteignafélagið Stoðir, sem í dag heitir Landic Property og er meðal annars í eigu sömu aðila og eiga Baug, veitti félaginu 3,3 milljarða króna víkjandi lán.

Í ársreikningnum eru eignir Baugs sagðar hafa verið um 314 milljarða króna virði. Langstærsta skráða eign þeirra, Stoðir, var metin á 72,2 milljarða króna. Stærsta eign Stoða var ráðandi hlutur í Glitni sem varð að engu við fall bankanna. Eignarhlutur í 56 óskráðum félögum var bókfærður á 152,4 milljarða króna en verðmat á einstökum félögum kom hins vegar ekki fram í ársreikningnum heldur var einungis hægt að sjá eignarhlutfall Baugs í hluta fyrirtækjanna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir