Viðskipti
| mbl
| 7.2.2009
| 7:11
Kannast ekki við stefnu
Bresk-íranski kaupsýslumaðurinn Robert Tchenguiz kannast ekkert við að Kaupþing hafi stefnt sér en eins og greint hefur verið frá var Oscatello Investments Ltd., eignarhaldsfélagi Roberts Tchenguiz á Bresku Jómfrúreyjum, verið stefnt af Kaupþingi vegna skuldar upp á 643 milljónir punda, 107 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í breska dagblaðinu Guardian í dag.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að skuldin var að mestu tryggð með veði í hlutabréfum og reikningum hlutafélaga. Veðhafi, sem í þessu tilviki er Kaupþing, hefur val um það hvort hann tekur veð ofarlega eða neðarlega í samstæðu, en á milli kunna að vera mörg félög. Eignasamstæða Tchenguiz er þannig uppsett að um er að ræða félög sem voru hliðsett öðrum félögum, sem áttu dótturfélög, sem áttu síðan eignir, t.d. bresku verslanakeðjuna Somerfield, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Frétt Guardian
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















