Viðskipti
| mbl
| 9.2.2009
| 11:51
Gætu fengið 20-40% upp í kröfur á gamla Glitni
Samkvæmt mati á stöðu gamla Glitnis, sem unnið var fyrir skilanefnd bankans, eru eignir bankans 1008 milljarðar króna en skuldir bankans eru metnar á 2417 milljarða.
Fram kemur í Morgunkorni Greiningar Glitnis, að umtalsverð óvissa sé í eignamatinu og óraunhæft sé talið, að selja eignir fyrir en eftir tvö ár þegar markaðir hafa skánað og hægt verði að fá hærra verð fyrir eignirnar. Kröfuhafar hafa óskað eftir því að fá sem mest út úr eignunum.
Haft er eftir Árna Tómassyni, formanni skilanefndarinnar, að með fyrirvara um þessa miklu óvissu megi reikna með að gamli Glitnir geti greitt 20-40% af skuldum sínum til kröfuhafa allt eftir því hvernig aðstæður á markaði muniþróast.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















