Frekari uppsagnir hjá RBS
Breski bankinn Royal Bank of Scotland (RBS) mun fljótlega tilkynna um uppsagnir 2.300 starfsmanna til viðbótar við þá þrjú þúsund sem sagt var upp í október. Allir þeir sem missa vinnuna nú starfa fyrir bankann í Bretlandi og eru þetta um 2% af heildarfjölda starfsmanna RBS í Bretlandi.
Breska ríkið á nú um 70% hlut í bankanum en stjórnvöld veittu RBS 20 milljarða punda aðstoð á síðasta ári.
Stephen Hester, forstjóri RBS, varaði við því í janúar að bankinn myndi jafnvel segja upp fleiri starfsmönnum og væntanlega yrði um frekari uppsagnir að ræða hjá öðrum bönkum. „Við líkt og allir aðrir bankar verðum að draga úr kostnaði og að sjálfsögðu þýðir það uppsagnir," sagði Hester í síðasta mánuði.
RBS hefur ekki birt uppgjör fyrir síðasta ár en í afkomuviðvörun kom fram að væntanlega nam tap bankans 7-8 milljörðum punda á síðasta ári. Er það mesta tap bankans í sögunni. Auk þess þarf að afskrifa um 20 milljarða punda vegna kaupanna á eignum hollenska bankans ABN Amro.
Um liðna helgi var mikil umræða í breskum fjölmiðlum um fyrirhugaða kaupauka starfsmanna Royal Bank of Scotland. Alistair Darling, fjármálaráðherra, sagði á sunnudag að ekki væri eðlilegt ef RBS greiddi starfsmönnum bónusa. „Ég hef rætt við forstjóra RBS og komið því til skila, og hann er sammála, að enginn sá sem tengist þessu mikla tapi eigi að fá að ganga út með háar fjárhæðir í formi bónusa," sagði Darling.



















