Frystu eignir Kaupþings
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi skilanefndar Kaupþings með erlendum kröfuhöfum sl. fimmtudag. Skilanefndin hafði ráðstafað þessu fjármagni til að greiða þýskum sparifjáreigendum. Heildarskuldbindingar bankans vegna sparifjáreigenda í Þýskalandi eru rúmlega 330 milljónir evra.
Umræddar 55 milljónir evra hafði DZ bankinn í sinni vörslu þar sem Kaupþing nýtti reikninga DZ sem millilið þegar innlánum var safnað á EDGE-reikningana. Frysti DZ bankinn fjárhæðina vegna annarrar óskyldrar kröfu á Kaupþing. Skilanefnd Kaupþings telur að frysting fjármagnsins sé ekki lögmæt og hefur farið fram á að DZ bankinn sýni fram að umrætt fé hafi ekki verið í vörslu hans vegna EDGE. Ekki verður gripið til sérstakra úrræðna fyrir þýskum stjórnvöldum til að fá frystingunni aflétt fyrr en samningaleiðin hefur verið reynd til þrautar.
Þýskir sparifjáreigendur hafa sýnt því takmarkaðan skilning að búið sé að leysa mál viðskiptavina Kaupþings í flestum öðrum löndum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Kaupþing á sem stendur í viðræðum við þýska fjármálaeftirlitið, Bafin, um lausn á málum þarlendra sparifjáreigenda.
Öll mál tengd innlánum vegna Kaupþing Edge-reikninganna í Noregi, Finnlandi og Austurríki hafa verið leyst og allir sparifjáreigendur í þessum löndum hafa fengið innlán sín greidd að fullu og voru þau greidd af eignum Kaupþings. Ljóst er að Kaupþing á nægt lausafé til að standa við kröfur Þjóðverjanna.



















