Viðskipti
| mbl
| 11.2.2009
| 16:10
Bandaríkjadalur hækkar um rúmar 2 krónur
Gengisvísitalan stendur í 195 stigum en var 193 stig við upphaf viðskipta á gjaldeyrismarkaði í dag. Það þýðir að gengi krónunnar hefur veikst um 1,04%. Gengi Bandaríkjadals hefur hækkað talsvert í dag eða um rúm 2%. Er dalurinn nú 114,12 krónur en var 111,77 krónur við lokun í gær. Evran er 147,25 krónur, pundið 163,65 krónur og danska krónan 19,761 króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















