Alcoa hættir samstarfi í Kína
Bandaríski álrisinn Alcoa ætlar að draga sig úr sameiginlegu verkefni félagsins og kínverska álfyrirtækisins Chinalco. Þetta kom til í kjölfar þess að Chinalco tilkynnti að félagið ætlaði að setja 19,5 milljarða bandaríkjadala í Rio Tinto Alcan.
Fjárfesting Chinalco í Rio Tinto Alcan er stærsta fjárfesting kínversks fyrirtækis í ríkiseigu í erlendu fyrirtæki. Um er að ræða útgáfu á breytilegum skuldabréfum sem hægt er að breyta í hlutafé. Ef það verður gert eykst hlutur Chinalco í Rio Tinto í 15%.
Alcoa mun fá liðlega einn milljarða dollara fyrir hlut sitt í sameiginlegu verkefni þess og Chinalco, sem nefnist Shining Prospect. Samkvæmt frétt Ap-fréttastofunnar ætlar Alcoa þó ekki að hætta allri samvinnu við Chinalco. Áfram verði leitað að hinum ýmsu tækifærum.
Eins og þekkt er þá er Alcoa móðurfélag álversins í Reyðarfirði. Rio Tinto Alcan er hins vegar móðurfélag álversins í Straumsvík.



















