Baugur stefnir í þrot

Húsnæði Baugs við Túngötu stækka

Húsnæði Baugs við Túngötu mbl.is/Rax

Morgunblaðið Eftir Þorbjörn Þórðarson og Björgvin Guðmundsson

Þeir sem þekkja til rekstrar Baugs Group segja að félagið sé gjaldþrota. Eigið fé sé neikvætt um 150 milljarða króna. Baugur sé í greiðslustöðvun sem geti endað á tvennan hátt. Annaðhvort gangi fjárhagsleg endurskipulagning upp, það komi inn nýtt eigið fé og kröfuhafar felli niður skuldir. Það er talið ólíklegt. Hin leiðin er að ósk um framlengingu greiðslustöðvunar verði hafnað og farið verði fram á gjaldþrotaskipti. Talið er líklegra að sú leið verði ofan á. Baugsævintýrinu myndi þá ljúka.

Skuldir Baugs Group við innlendar lánastofnanir eru 1.100 milljónir punda, að sögn Stefáns Hilmarssonar, fjármálastjóra Baugs, en fyrirtækinu var veitt greiðslustöðvun í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær til 4. mars. Eignirnar á móti eru mun verðminni, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þrátt fyrir sölu á eignum fyrir yfir 60 milljarða króna síðastliðna tólf mánuði er eiginfjárstaðan neikvæð um 150 milljarða, samkvæmt bráðabirgðamati.

Stjórnendur Glitnis, Landsbankans og Straums hafa gert það sem þeir geta til að tryggja sína hagsmuni og gengið að veðum dótturfélaga Baugs í Bretlandi og Danmörku. Kaupþing er með veð í Högum eftir að hafa lánað Gaumi, félagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, fyrir yfirtöku á félaginu í júlí í fyrra. Mun Kaupþing fylgja þeim veðkröfum fast eftir á næstunni, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Kapphlaup kröfuhafa um takmörkuð verðmæti er hafið.

Samkvæmt heimildum er lítil von fyrir þá sem ekki eiga veðtryggðar kröfur á Baug að fá þær greiddar. Til dæmis eigi smærri fjármálafyrirtæki kröfur upp á um það bil 180 milljónir punda á félagið samanlagt, sem ekki eru veðtryggðar. Það jafngildir um 30 milljörðum króna. Stærstu kröfurnar eiga Sparisjóðabankinn, Byr og VBS fjárfestingarbanki, upp á samtals 72 milljónir punda eða tæpa 11 milljarða. Þetta er þungt högg fyrir þessi fyrirtæki. Kröfur annarra fjármálafyrirtækja eru lægri. Þá á Landic Property kröfu upp á 65 milljónir punda.

Agnar Hansson, forstjóri Sparisjóðabankans, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að bankinn ætti mikið undir hjá Baugi.

„Þessi fyrirtæki áttu töluvert undir og þetta eru starfandi fyrirtæki í dag. Aðgerðir skilanefndar Landsbankans [að krefjast greiðslustöðvunar á BG Holding í Bretlandi] gera það að verkum að það verður töluvert tjón hjá þessum fyrirtækjum sem hefði ekki þurft að koma til. Tjón annarra kröfuhafa en Landsbankans verður miklu meira, því þeir eru aftar í röðinni,“ segir Stefán Hilmarsson.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir