Viðskipti
| Morgunblaðið
| 12.2.2009
| 5:30
| Uppfært
6:47
Hvattir til eftirlits
bjarni@mbl.is
Starfsfólk Kaupþings hefur í nýju bréfi verið hvatt til að upplýsa Fjármálaeftirlitið (FME) hafi það tekið eftir hugsanlegu misferli í störfum sínum fyrir bankann. Í bréfinu, sem stjórn Kaupþings sendi til allra starfsmanna bankans, er bent á nýja samskiptagátt FME, Gjallarhornið, sem þeir geta notað, sem orðið hafa varir við hugsanlegt misferli í störfum sínum.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, segir að bréfið hafi verið sent út að áeggjan FME. „Ég held ekki að tilmælin komi til með að draga úr trausti milli starfsmanna. Í flestum nágrannaríkjum okkar eru skilgreindar leiðir fyrir starfsfólk til að koma á framfæri áhyggjum sínum af misferli samstarfsfólks og viðskiptavina og er tímabært að svo sé einnig hér.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















