Viðskipti
| AFP
| 12.2.2009
| 10:48
Olíuverð nálgast 35 dali
Verð á hráolíu hefur lækkað um 19 sent tunnan í morgun í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York og er nú 35,75 dalir. Verðið á tunnunni fór lægst í 32,20 dali þann 18. desember en hæst í rúma 145 dali um miðjan júlí. Í Lundúnum hefur verðið á tunnunni af Brent Norðursjávarolíu hækkað um 39 sent og er 44,69 dalir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















