Vilja taka slaginn saman
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Núna er tekist á um hvort stærstu eigendur félagsins, Ágúst og Lýður Guðmundssynir, eigi að stjórna förinni í viðræðum við kröfuhafa félagsins. Stjórnendur Nýja Kaupþings vilja leiða þær viðræður. Bankinn á mikilla hagsmuna að gæta vegna hárra krafna á Exista.
Á móti kemur að Ágúst og Lýður telja sig eiga kröfur á íslensku bankana vegna óuppgerðra afleiðusamninga upp á 120-140 milljarða króna. Það væri hægt að skuldjafna kröfunum en ekki er sátt um á hvaða gengi á að gera upp afleiðusamningana. Bræðurnir vilja fá þessa samninga uppgerða á skráð gengi Seðlabanka Evrópu, rétt eins og Kjalar, eignarhaldsfélag Ólafs Ólafssonar.
Lánamál Exista eru í raun tvíþætt, annars vegar eru það innlendu bankarnir og svo hins vegar erlent sambankalán, sem Kaupþing er einnig aðili að.
Þegar Kaupþing ætlaði að taka Exista yfir í desember nýttu Ágúst og Lýður heimild hluthafafundar til hlutafjáraukningar og lögðu einn milljarð í handbæru fé inn í félagið á genginu 0,02. Við það eignuðust þeir tæplega 78% í Exista í gegnum félagið BBR. Kaupþing tók hins vegar yfir félag þeirra bræðra, sem var fyrir hlutafjáraukninguna stærsti einstaki hluthafinn, Bakkabræður Holding, og eignaðist 10,4% í félaginu.




















