Kaupréttir hjá Straumi
Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hefur veitt stjórnendum og starfsmönnum samstæðunnar kauprétti að hlutabréfum í Straumi að nafnverði 650 milljónir króna. Viðmiðunargengi kauprétta er 1,67 krónur á hlut, en það er meðalgengi síðustu tuttugu viðskiptadaga.
Heildarkaupverðið þessara kauprétta er 1.085 milljónir króna miðað við framannefnt gengi hlutabréfanna.
Segir í tilkynningu frá Straumi að aðilum í framkvæmdastjór bankans sé veittur kaupréttur að hlutum að nafnvirði samtals 296 milljónir. Um markmið með kaupréttarkerfi er vísað í tilkynningunni til starfskjarastefnu bankans sem samþykkt var á aðalfundi þann 15. apríl 2008.
Handhafar kauprétta ávinna sér réttindi í þremur jöfnum áföngum, þ.e. eftir fyrsta, annað og þriðja ára frá útgáfudegi og er kaupréttur í gildi fram að lokum fimmta árs. Gildistími kauprétta er fimm ára en kaupréttur fellur niður við starfslok.
Segir í tilkynningunni að áunnin kauprétt megi nýta hvernær sem er á gildistímanum í samræmi við áunnin réttindi, nema lög og reglur kveði á um tímabundin takmörk við viðskiptum.



















