Viðskipti
| AFP
| 16.2.2009
| 10:35
Ráða þrjú þúsund nýliða til starfa
Framleiðandi Blackberry síma, kanadíska fyrirtækið Research In Motion, ætlar að ráða þrjú þúsund nýliða til starfa til þess að ná að anna eftirspurn þrátt fyrir efnahagskreppu í heiminum.
Jim Balsillie, aðstoðarforstjóri fyrirtækisins, segir að starfsmönnum hafi fjölgað um 50% á síðasta ári og enn sé stefnt að því að ráða fleiri til starfa vegna mikillar sölu á símunum. „Við réðum 4 þúsund starfsmenn á árinu 2008 og okkur vantar þrjú þúsund til viðbótar. Við erum enn að ráða."
Þetta er algjörlega á skjön við það sem er að gerast hjá öðrum farsímaframleiðendum en til að mynda tilkynnti Nokia á síðasta ári að 1.200 yrði sagt upp og Sony-Ericsson tvö þúsund.
Sala Research In Motion jókst um 66% á tímabilinu september-nóvember miðað við sama tímabil 2007. Alls hafa selst 50 milljónir Blackberry símar frá því framleiðsla á þeim hófst.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















