Viðskipti
| mbl
| 16.2.2009
| 18:37
Starfsmenn Straums fá kauprétt
Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hefur veitt stjórnendum og starfsmönnum samstæðunnar kauprétti að hlutabréfum í Straumi að nafnverði 650 milljónir króna. Þar af var mönnum í framkvæmdastjórn Straums veittur kaupréttur að hlutum að nafnvirði samtals 296 milljónir.
Viðmiðunargengi kaupréttarins er 1,67 krónur sem er meðalgengi síðustu tuttugu viðskiptadaga fyrir útgáfudag. Lokagengi bréfa Straums var 2,53 í Kauphöll Íslands í dag.
Gildistími kauprétta er fimm ár en kaupréttur fellur niður við starfslok.
Viðkomandi starfsmenn mega nýta áunninn kauprétt hvenær sem er á gildistímanum í samræmi við áunnin réttindi, nema lög og reglur kveði á um tímabundin takmörk við viðskiptum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















