Ekki útilokað að stýrivextir lækki í 0% í Svíþjóð
Þegar bankastjórn Seðlabanka Svíþjóðar lækkaði stýrivexti þann 11. febrúar varaði hún við því að mögulega þyrfti að lækka stýrivexti enn frekar á næstu sex mánuðum.
„Líkt og bæði Japan og Bandaríkin, sem eru með 0% stýrivexti, og fleiri ríki sem eru að lækka stýrivexti í næstum 0%, þá er eðlilegt að peningamálastefna með 0% stýrivexti verði meira inni í umræðunni," sagði Svenson.
Svenson, sem er sérfræðingur aðstæðum sem kallast reiðufjár gildra (liquidity trap), en það er þegar verðhjöðnun og 0% stýrivextir fara saman, ástand sem Japanar þekkja vel, segir að sænski seðlabankinn verði að vera vel á verði og gera sitt til þess að draga úr líkum á því að bankinn standi frammi fyrir slíkum aðstæðum.
Svenson vann meðal annars skýrslu árið 2003 með nýverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna, Ben Bernanke , og nóbelsverðlaunahafanum í hagfræði 2008, Paul Krugman, um slíkar aðstæður.



















