Erfiðari staða í Austur-Evrópu
Yulia Tymoshenko, forsætisráðherra Úkraínu, er meðal þeirra leiðtoga í Austur-Evrópu sem hefur þurft að takast á við aukna erfiðleika vegna kreppunnar í heiminum. POOL
Erlendir bankar sem eiga mikilla hagsmuna að gæta í Austur-Evrópu gætu orðið fyrir því að lánshæfiseinkunnir þeirra yrðu lækkaðar vegna þeirrar lægðar sem komið hefur fram á svæðinu að undanförnu. Þetta er mat fyrirtækisins Moody´s Investors Service.
Moody´s gerir ráð fyrir því að þrýsingur á erlenda banka í Austur-Evrópu muni aukast á næstunni. Segir í frétt Bloomberg-fréttastofunnar að austurrísku bankarnir Raiffeisen og Erste Group, hinn franski Societe General og belgísku bankarnir UniCredit og KBC eigi einna stærstra hagsmuna að gæta í Austur-Evrópu meðal erlendra banka á því svæði. Lánshæfiseinkunnir þessara banka og fleiri gætu því breyst á næstunni. Vöxturinn í þessum löndum að undanförnu hafi mikið byggst á lántökum. Kreppan í heiminum sé farin að gera þær erfiðari og það hafi komð fram í minni útflutningi frá þessu svæði.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur nú þegar veitt Lettum, Ungverjum, Serbum og Úkraínumönnum aðstoð. Þá þykir ekki ólíklegt að Búlgaría, Rúmenía, Litháen og Eistland muni þurfa á aðstoð að halda.



















