Gagnrýna Seðlabankafrumvarp

Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, seðlabankastjórar á fundi viðskiptanefndar stækka

Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, seðlabankastjórar á fundi viðskiptanefndar mbl.is/Ómar

Seðlabankastjórarnir, Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, gagnrýna harðlega breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands. Segja þeir mjög mikilvægt að kasta ekki til höndunum við breytingar á lögunum. Sýna þurfi mikla gát og vandvirkni til að fyrirbyggja að úr verði stjórnsýslubastarður, sem geri stjórnina óskilvirka og valdi tortryggni innan sem utan bankans.

„Núgildandi lög voru samin í heild og nutu stuðnings allra flokka á þingi. Engin breyting hefur verið gerð á þeim. Það yrði mikið óláns- og óhappaverk ef hlaupið yrði í illa grundaðar og illa undirbúnar breytingar í annarlegum tilgangi, sem engin sátt yrði um innan þings eða utan. Ekkert væri verr til þess fallið að verja hróður bankans og styrkja trúverðugleika hans, sem margur hefur þó á vörunum að sé æskilegt," að því er segir í umsögn Seðlabanka Íslands um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands.

Segir í umsögninni að tölvupóstur hafi borist frá viðskiptanefnd Alþingis síðdegis þann 10. febrúar þar sem óskað var eftir umsögn Seðlabankans um frumvarpið. Var veittur frestur til að skila umsögn til 12. febrúar. Seðlabankinn óskaði bréflega eftir því þann 11. febrúar að fá þriggja vikna frest til að skila umsögn um svo þýðingarmikil mál eins og venja er að veita samkvæmt leiðbeiningum þingsins. 

„Með bréfi formanns viðskiptanefndar dags. 12. febrúar var frestur Seðlabankans til umsagnar lengdur til mánudags 16. febrúar. Í raun var því enginn virkur dagur falinn í frestinum, og getur það naumast hafa verið ætlun nefndarinnar."

Segir ennfremur í umsögninni að efnisbreytingar samkvæmt frumvarpinu eru í meginatriðum tvær. Annars vegar er lagt til að bankastjórn Seðlabanka Íslands verði aflögð og skipaður verði einn faglegur seðlabankastjóri, eins og það er orðað, sem stýrir bankanum og hins vegar að innan bankans starfi svokölluð  peningastefnunefnd sem hafi það hlutverk að taka ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum. 

Seðlabankastjórar hafa í morgun komið á fund viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps um Seðlabankann, sem er til meðferðar í nefndinni. Ingimundur Friðriksson, sem sagði af sér embætti seðlabankastjóra í síðustu viku, kom á fund nefndarinnar klukkan 8:30 en Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, komu klukkan 9.

Þeir Davíð og Eiríkur segja í umsögninni að það efnahagsáfall sem yfir hefur dunið gefi vissulega tilefni til að huga að löggjöf um Seðlabanka Íslands. Þær breytingar sem þar eru lagðar til myndu engu breyta um stöðu eða styrk bankans til að hafa áhrif á atburðarás eins og þá sem varð.

„Ríkt tilefni væri til að fara yfir skyldur Seðlabankans við slíkar aðstæður, þau úrræði sem honum eru búin og verkaskiptingu stofnana á borð við Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlit, svo dæmi sé tekið. Nú þykir mörgum sem láta sig þessi mál varða og best þekkja til að rétt sé að kanna hvort ekki eig að efla fjármálaeftirlit við yfirsýn og yfirstjórn regluverks á fjármálamarkaði (regulation) en um leið styrkja umsjónarvald og ábyrgð Seðlabanka gagnvart bankalegum þáttum (supervision, inspection) og draga um leið úr gráum svæðum milli slíkra stofnana. Fyrirliggjandi frumvarp tekur ekki með neinum hætti á slíkum þáttum né öðrum jafn brýnum. Þetta eru þó þeir þættir sem mest eru ræddir í þeim löndum sem let hafa í áþekkum efnahagslegum áföllum og Ísland."

Umsögn Seðlabankans í heild

Seðlabanki Íslands.

Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir