Skattaafsláttur vegna íbúðakaupa

Barack Obama lagði gríðarlega mikla áherslu á að þingið samþykkti …
Barack Obama lagði gríðarlega mikla áherslu á að þingið samþykkti aðgerðaáætlun hans. Honum varð að ósk ksinni. AP

Barak Obama, Bandaríkjaforseti, mun í dag skrifa undir lög um aðgerðapakka stjórnvalda upp á 787 milljarða dollara, sem er einhver stærsta aðgerð af þessu tagi í sögu Bandaríkjanna.

Meðal þess sem fyrirhugað er að gera í aðgerðaáætluninni er að veita fyrstu íbúðakaupendum sérstakan átta þúsund dollara skattaafslátt. Markmiðið er að stuðla að því að fasteignamarkaðurinn nái sér á strik á ný en hann hefur algjörlega hrunið vestanhafs eins og víða annars staðar í heiminum.

Segir í frétt á fréttavef CNN-fréttastofunnar, að þeir sem starfi á fasteignamarkaði bindi nokkrar vonir við að skattaafslátturinn muni hafa jákvæð áhrif á fasteignamarkaðinn. Afslátturinn komi til viðbógar við nokkra lækkun á vöxtum af íbúðalánum að undanförnu, en seðlabanki Bandaríkjanna hefur lækkað stýrivexti sína oft að unfanförnu og eru þeir nú nálægt núlli. Í Bandaríkjunum hefur stýrivaxtalækkun alla jafna bein áhrif á vexti af íbúðalánum öfugt við stöðuna hér á landi þar sem lítið samband er alla jafna þar á milli.

Í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki eins mikið um fjármagn sem er eyrnamerkt stórfyrirtækjunum í Bandaríkjunum og forsvarsmenn þeirra höfðu vonað, samkvæmt frétt CNN.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK