Félög Pálma greiddu átta milljarða í arð
Pálmi Haraldsson ásamt félögum sínum í FL Group þeim Jóni Sigurðsyni og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni mbl.is/Golli
Eftir Þórð Snæ Júlíusson og Þorbjörn Þórðarson
Þetta kemur fram í ársreikningum félaganna sem var skilað til ársreikningaskrá í lok janúar síðastliðins. Fengur skilaði ársreikningum fyrir árin 2005, 2006 og 2007 í desember og janúar. Iceland Express og ferðaskrifstofan Express-ferðir skiluðu einnig reikningum fyrir sömu ár í desember og janúar, en félögin eru bæði í eigu NTH.
Endurskoðendur ársreikninga NTH segja í athugasemdum með ársreikningi ársins 2007 að reikningurinn gefi ekki „rétta og eðlilega mynd“ af fjárhagsstöðu félagsins í árslok 2007 eða af afkomu þess og fjárstreymi á því rekstrarári.Upp á ársreikninga skrifar stjórn NTH í desember á síðasta ári en ársreikningnum var nýlega skilað til ársreikningaskrár. Í raun og veru var stjórnin að samþykkja ársreikning félags sem var gjaldþrota. Pálmi Haraldsson, segir að það sé ekkert inni í NTH, allar eignir félagsins hafi verið seldar. „Það er skrifað undir ársreikningana einum og hálfum mánuði eftir þrot Sterling og þess vegna er þessi athugasemd þarna. Það er engin frétt í þessu. [...] Það er búið að leysa þetta félag upp og það er ekkert inni í því.“ Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins frá Deloitte er ástæða athugasemdarinnar sú að ekki sé hægt að fullyrða að fyrirtækið verði starfandi næstu tólf mánuði. Þannig gefi reikningur ársins 2007 ekki sanna mynd af rekstrinum miðað við það sem síðar varð.



















