Vilja meira jafnræði

Alþingishúsið
Alþingishúsið Árvakur/Golli

Hagsmunasamtök heimilanna fagna frumvarpi ríkisstjórnarinnar um greiðsluaðlögun, sem nú er til meðferðar hjá allsherjarnefnd Alþingis. Samtökin leggja þó til breytingar á frumvarpinu sem miða að því að auka jafnræði fyrir þá sem komast í greiðsluvanda.

Árni Páll Árnason, alþingismaður fyrir Samfylkinguna og formaður allsherjanefndar Alþingis, sagðist í samtali við Morgunblaðið síðastliðinn mánudag vera þeirrar skoðunar að það sé tilgangslítið að ganga frá lögum um greiðsluaðlögun sem fela ekki í sér að öll veðlán séu tekin með.  Samkvæmt frumvarpinu, sem dómsmálaráðherra lagði fram fyrir um tveimur vikum síðan nær greiðsluaðlögun hins vegar einungis til veðskulda sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs og annarra fjármálafyrirtækja sem eru í eigu ríkisins.

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) eru sama sinnis og Árni Páll, þ.e. að greiðsluaðlögun verði að ná til allra veðskulda. Í tilkynningu frá samtökunum, sem send var til fjölmiðla með umsögn þeirra um frumvarpið segir að meginmarkmið tillagnanna sé að auka jafnræði  og koma í veg fyrir að einstaklingar séu útilokaðir frá því að geta nýtt sér þessa leið. Þá segir: „Í fyrsta lagi á grundvelli þess hvers eðlis skuldir þeirra eru, í öðru lagi á grundvelli þess hvar er til þeirra stofnað, eða hverjir kröfuhafar eru, og í þriðja lagi á grundvelli þess hvernig þeir hafa aflað sér tekna síðustu ár. Að auki vilja HH leggja áherslu á að frumvarpið getur aðeins leyst vanda þeirra sem eru hvað verst staddir og lenda í greiðsluþroti en alls ekki vanda allra heimila í landinu.“

Hagsmunasamtök heimilanna leggja áherslu á að bráðaaðgerðir stjórnvalda feli í sér eftirfarandi:

Almennar leiðréttingar á gengis- og verðtryggðum lánum heimilanna.

Afnám verðtryggingar.

Jöfnun á áhættu milli lánveitenda og lántakenda.

Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði.

Samfélagslega ábyrgð lánveitenda.

Þá leggja samtökin fram kröfur um bráðaaðgerðir vegna stöðu heimilanna í landinu:

Aðgerð #1: Tafarlaus tímabundin stöðvun fjárnáma og nauðungaruppboða heimila Að lög verði sett sem komi tímabundið í veg fyrir fjárnám og nauðungaruppboð íbúðarhúsnæðis til 1. nóvember 2009, á meðan unnið er í að útfæra aðrar aðgerðir fyrir heimilin í landinu.

Aðgerð #2: Leiðrétting á gengistryggðum íbúðalánum (framkvæmt samtímis aðgerð #3). Boðið verði upp á að gengistryggð íbúðalán verði umreiknuð sem verðtryggð krónulán frá lántökudegi hvers lántakanda.

Aðgerð #3: Leiðrétting á verðtryggðum íbúðarlánum (framkvæmt samtímis aðgerð #2). Verðbótaþáttur, frá og með 1. janúar 2008, takmarkist við efri mörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, eða að hámarki 4%. Aðgerð þessi verði fyrsta skrefið sem stigið verður til afnáms verðtryggingar.

Aðgerð #4: Frumvarp til laga um greiðsluaðlögun, þannig að jafnræðis sé gætt og að aðgerðin sem slík sé almennari og mismuni ekki fólki byggt á eðlis skulda, hvar stofnað er til þeirra eða þess hvernig fólk hefur aflað sér tekna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK