Óvíst að sveitarfélög fái innistæður greiddar
Bresk sveitarfélög sem áttu peninga á innlánsreikningum íslensku bankanna, hafa verið vöruð við því að ekki sé tryggt að þau fái féð til baka. Þetta kemur fram á vefnum Kent Online. Segir þar að viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, hafi neitað að veita sveitarfélögunum staðfestingu á því og varað við því að eignir bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, dygðu til þess að greiða öllum lánadrottnum.
Kent-sýsla á 50 milljónir punda inni á reikningum bankanna þriggja og einhver sveitarfélög í Kent eiga á bilinu 1-6 milljónir punda á innlánsreikningum hjá bönkunum. Lögregluyfirvöld í Kent eiga 10 milljónir punda á reikningunum.
Samningaviðræður við skiptastjóra bankanna halda áfram og hafa 123 sveitarfélög sameinast um að reyna endurheimta fjármuni sína frá íslensku bönkunum en alls eiga sveitarfélögin um 1 milljarð punda, 163 milljarða króna, bundna á íslenskum reikningum, samkvæmt frétt Kent Online.
Kent á 18 milljónir punda á reikningum í Heritable-bankanum, dótturfélagi Landsbankans, 15 milljónir punda hjá Glitni og sjö milljónir punda hjá Landsbankanum.




















