Sparifjáreigendur á Mön fá 60% af innistæðum
Sparifjáreigendur á eynni Mön, sem áttu innistæður á reikningum hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í Bretlandi, fá að minnsta kosti 60% af innistæðum sínum greidd, samkvæmt áætlun, sem dómstóll á eyjunni féllst á í gær. Sparifjáreigendurnir sjálfir þurfa að samþykkja áætlunina áður en henni verið hrint í framkvæmd.
Um 10 þúsund manns áttu samtals 860 milljónir punda, jafnvirði 140 milljarða króna, inni á reikningum Singer & Friedlaner. Þeir óttuðust að allt fé þeirra væri tapað þegar bankinn var settur í greiðslustöðvun 9. október vegna þess að breski innlánatryggingasjóðurinn neitaði að ábyrgjast innlánin.
Fram kemur í breska blaðinu Times, að tilsjónarmenn bankans á Mön ráði yfir 540 milljónum punda. Þar af séu hins vegar um 400 milljónir punda eign Kaupthing Singer & Friedlande. Ríkisstjórn Manar hefur samþykkt að leggja 150 milljónir punda til að greiða sparifjáreigendunum. Er áætlað að 54% þeirra fái allar innistæður sínar greiddar innan þriggja mánaða og 71% allt sitt innan tveggja ára.



















