Viðskipti
| mbl
| 23.2.2009
| 11:37
Segja bankaþjónustu hafa versnað
Samkvæmt nýlegri viðhorfskönnun meðal aðildarfélaga Viðskiptaráðs töldu 62% þeirra sem svöruðu að þjónusta bankakerfisins gagnvart sínu fyrirtæki hefði breyst til hins verra frá hruni bankanna.
Í bréfi til aðildarfélaga segir Viðskiptaráð að margvíslegar ástæður geti legið til grundvallar og hafi ráðið því áhuga á að afla sér nánari upplýsinga um hvað betur megi fara í rekstri nýs bankakerfis.
Er því óskað eftir áliti aðildarfélaga um hvernig bæta megi almenna þjónustu fjármálakerfisins og hver reynsla aðildarfyrirtækja hafi verið af nýjum verklagsreglum bankanna og viðmiðunarreglum Samkeppniseftirlitsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















