Viðskipti
| AFP
| 24.2.2009
| 11:37
Dótturfélag Finnair segir upp starfsmönnum
Finnair mbl.is/Finnair
Northport, dótturfélag finnska flugfélagsins Finnair ætlar að segja upp 90 starfsmönnum vegna minni flugumferðar. Félagið sinnir þjónustu fyrir Finnair á flugvöllum.
Uppsagnirnar eru hluti af miklum niðurskurði hjá félaginu en stefnt er að því að draga úr kostnaði um 3,5 milljónir evra hið minnsta. Northport íhugar jafnvel að segja upp öllum starfsmönnum félagsins tímabundið en alls starfa 900 manns hjá félaginu.
Í janúar tilkynnti Finnair um uppsagnir 140 starfsmanna og að yfir þrjú þúsund yrði sagt upp tímabundið. Með þessu átti að spara um 20 milljónir evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















