Straumur lækkaði um 19% í Kauphöllinni
Langmest lækkun varð með hlutabréf í Straumi Burðaráss í Kauphöllinni í dag og lækkuðu hlutabréfin um 19,34%. Gengi Straums er nú aðeins 1,46 kr. á hlut.
10,9 milljarða velta var með skuldabréf í Kauphöllinni en samanlögð velta með hlutabréf var hins vegar aðeins 172,7 milljónir króna, þar af langmest með bréf Straums, eða 103,4 milljónir króna. 49,3 milljóna króna velta var með hlutabréf í Marel og lækkaði félagið um 0,20% í þeim viðskiptum.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 4,81% og stendur nú í 799,39 stigum. Gengi bréfa í Bakkavör lækkaði um 3,16%. Ekkert félag á aðallista Kauphallarinnar hækkaði.
Straumur í erlenda Kauphöll?
Straumur veitti nýlega stjórnendum og starfsmönnum samstæðunnar kauprétti að hlutabréfum í Straumi að nafnverði 650 milljónir króna. Þar af var mönnum í framkvæmdastjórn Straums veittur kaupréttur að hlutum að nafnvirði samtals 296 milljónir. Viðmiðunargengi kaupréttarins var 1,67 krónur sem var meðalgengi síðustu tuttugu viðskiptadaga fyrir útgáfudag. Í kjölfarið hækkuðu bréf Straums nokkuð en gengið bréfanna virðist komið í fyrra horf.
William Fall, forstjóri Straums, hefur sagt í viðtölum að hann telji að félagið sé undirverðlagt í Kauphöllinni á Íslandi. Á uppgjörsfundi félagsins í janúar kom fram að félagið hefði skoðað í nokkurn tíma möguleikann á því að skrá hlutabréf bankans í erlenda kauphöll. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um slíkt.



















