Íhuga samninga um eignaskipti
Ríkisstjórnin íhugar að biðja íslenska aðila, sem eiga eignir í útlöndum, svo sem lífeyrissjóði, að skipta á þeim eignum og íslenskum eignum, sem eru í eigu erlendra fjárfesta. Þetta hefur breska viðskiptablaðið Financial Times eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra.
Blaðið segir, að erlendir fjárfestar eigi allt að 400 milljarða íslenskra króna í svonefndum krónubréfum og íslenski seðlabankinn óttist að þær eignir verði fluttar úr landi ef núverandi gjaldeyrishöftum verður aflétt. Það muni leiða til hruns gengis krónunnar.
FT hefur eftir Steingrími, að einnig sé verið að íhuga að bjóða erlendum fjárfestum að breyta núverandi skuldabréfum þeirra í langtímaskuldabréf og draga þannig úr hættu á að féð verði flutt úr landi.
„Það leysir ekki allan vandann að hafa eignaskipti vegna þess að erlendar eignir Íslendinga ná ekki þessum 400 milljörðum króna en aðrir erlendir fjárfestar kynnu að hafa áhuga á að halda fjárfestingum sínum hér og nýta sér háa vexti í langan tíma," hefur FT eftir Steingrími.
Gangi þessar áætlanir eftir væri hægt að létta af gjaldeyrishöftum sem myndi aftur greiða fyrir lækkun stýrivaxta því gjaldmiðillinn þyrfti ekki lengur slíkan stuðning. Stýrivextir eru nú 18%.
„Þetta er eitt af forgangsmálunum. Við gerum okkur grein fyrir því, að verði ekki tekið á þessu mun það tefja lækkun vaxta og afnám gjaldeyrishafta," segir Steingrímur við Financial Times.




















