Mesta lækkun í 24 ár
Síðastliðna 12 mánuði hefur fasteignaverð lækkað um tæplega 21% að raunvirði. Raunverð fasteignaverðs hefur einu sinni lækkað meira
eða árið 1985 þegar raunverð lækkaði um 21% samkvæmt greiningu IFS.
Árið 2007 má segja að fasteignaverð hafi vikið frá undirstöðum verðmyndunar á fasteignamarkaði samkvæmt greiningu IFS. Þrátt fyrir sífellt hækkandi fjármagnskostnað og nær enga kaupmáttaraukningu hélt fasteignaverð áfram að hækka að raunvirði. Þegar mest var hafði fasteignaverð seinni hluta árs 2007 hækkað um 50% umfram jafnvægi
„Til þess að fasteignamarkaður nái aftur jafnvægi er ljóst að veruleg lækkun þarf að verða á fasteignamarkaði. Ef gert er ráð fyrir að laun muni hækka um 10 til 15% á næstu 3 árum er ljóst að fasteignaverð þarf að lækka um 25 til 30% til að jafnvægi náist á fasteignamarkaði á sama tíma. Nú þegar hefur fasteignaverð lækkað um 21% að raunvirði, samkvæmt þessu var fasteignaverð ofmetið um 40 til 50% þegar það var hæst,“ segir í riti IFS um fasteignamarkaðinn.



















