Vilja lækka stjórnarlaun
Gunnlaugur Sigmundsson, stjórnarformaður Icelandair Group, fékk 9,6 milljónir í laun frá félaginu í fyrra. mbl.is/Golli
Tillaga liggur fyrir aðalfundi Icelandair Group um að lækka laun stjórnarmanna um 20%. Aðalfundurinn er á mánudaginn. Samkvæmt tillögunni á stjórnarformaðurinn að fá 320 þúsund krónur á mánuði. Aðrir stjórnarmenn eiga samkvæmt tillögunni að fá greiddar 160 þúsund krónur á mánuði og varamenn 80 þúsund krónur fyrir hvern setinn fund.
Samkvæmt þessu eru árslaun stjórnarformanns félagsins 3,8 milljónir króna. Samkvæmt ársuppgjöri Icelandair Group fékk stjórnarformaðurinn, Gunnlaugur M. Sigmundsson, greiddar 9,6 milljónir í laun á árinu 2008 og varaformaðurinn, Ómar Benediktsson, 6,3 milljónir.
Icelandair Group tapaði um tíu milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi og 7,5 milljarði króna á árinu 2008.



















