Elín ennþá í bankanum
Elín Sigfúsdóttir, fráfarandi bankastjóri Landsbankans og Ásmundur Stefánsson, nýr bankastjóri bankans. mbl.is/Ómar
Elín Sigfúsdóttir, fráfarandi bankastjóri Landsbankans, er enn við störf í bankanum. Áður hafði verið ákveðið að Elín léti af störfum 1. mars en í ljósi aðstæðna er hún enn við störf.
Ásmundur Stefánsson, sem mun taka við starfi bankastjóra er staddur á Indlandi þar sem hann er í fríi og er búist við að hann komi heim á morgun, samkvæmt upplýsingum frá bankanum.
Bankaráð ákvað að fresta því að auglýsa stöðu bankastjóra þangað til á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Haukur Halldórsson varaformaður bankaráðs tók við formennsku í bankaráðinu í stað Ásmundar og varamaður Ásmundar, Ása Richardsdóttir, tók sæti í bankaráðinu.
Sem formaður bankaráðs hefur Ásmundur ekki komið nálægt daglegum rekstri. Elín verður því honum eitthvað innan handar fyrstu dagana í starfi, samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum.



















