Skilyrði að skapast fyrir afnámi hafta
Skilyrði eru að skapast fyrir afnámi gjaldeyrishafta, samkvæmt upplýsingum frá greiningardeild Íslandsbanka.
Samkvæmt reglum um gjaldeyrismál nr. 1130/2008 ber að endurskoða þær eigi síðar en 1. mars 2009. Seðlabanki Íslands hefur metið hvort nauðsynleg skilyrði þess að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft séu til staðar og tilkynnti í morgun að komist hefði verið að þeirri niðurstöðu að skilyrðin væru ekki fyrir hendi.
„Það standa yfir viðræður Seðlabankans, ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um það hvort og hvenær eigi að afnema höftin og eitt af markmiðum viðræðnanna er að setja saman einhvers konar ramma um hvenær höftunum verði aflétt. Það hefði einfaldlega verið ótímabært að afnema höftin núna,“ segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka.
Næsta endurskoðun á reglum um gjaldeyrismál mun eiga sér stað eigi síðar en 1. september 2009, samkvæmt ákvæðum laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992 með síðari breytingum. Seðlabanki Íslands metur reglubundið skilvirkni gjaldeyrishaftanna í samhengi við peningastefnuna og vinnur að áætlun um afnám þeirra í áföngum.
„Það er tímapressa vegna þess að gjaldeyrishöft ganga eiginlega gegn EES-samningnum, skuldbindingum okkar gagnvart OECD og í rauninni stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sjálfs,“ segir Jón Bjarki. Hann segir að það komi sennilega í ljós á næstu vikum hvort skilyrði séu fyrir hendi fyrir afnámi hafta. „Það sem menn sögðu í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í desember, sem birt var nú á dögunum, var að menn vildu sjá krónuna styrkjast og ná stöðugleika, minni verðbólgu og bata í greiðslujöfnuði. Krónan hefur styrkst og með góðum vilja má segja að verðbólgan hafi hjaðnað og hjaðni hratt á næstu mánuðum. Maður getur því sagt að þau skilyrði sem sjóðurinn setti séu að skapast,“ segir Jón Bjarki. „Mig grunar að á næstunni verði stigin einhver skref til þess að sýna viljann í verki.“




















