Viðskipti
| mbl
| 3.3.2009
| 12:38
200 milljarða viðskiptahalli
mbl.is
Viðskiptahalli á síðasta fjórðungi ársins 2008 var 199,6 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi sem er talsvert meiri halli en á fjórðungnum á undan. Rúmlega 33 milljarða afgangur var í vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd en rétt yfir 233 milljarða halli þáttatekna skýrir óhagstæðan viðskiptajöfnuð að sögn Seðlabankans.
Greining Íslandsbanka segir, að viðskiptahallinn sé sá mesti, sem sést hafi í greiðslujafnaðartölum, Afgangur af vöruskiptum á fjórðungnum er einnig sá mesti síðan Seðlabankinn hóf að birta ársfjórðungslegar tölur árið 1990. Komi þar bæði til jákvæður viðsnúningur í magni vöruskiptanna sjálfra, en einnig óvenju lágt gengi krónu sem geri krónutöluna hærri sem því nemur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















