Viðskipti
| mbl
| 3.3.2009
| 18:03
Greiðslustöðvun Landsbanka framlengd
Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag beiðni skilanefndar Landsbanka Íslands hf. um níu mánaða framlengingu á greiðslustöðvun bankans, eða til 26. nóvember 2009. Beiðni um framlengingu var ekki mótmælt af hálfu kröfuhafa við fyrirtöku málsins.
Lárus Finnbogason, formaður skilanefndarinnar, segist í tilkynningu vera mjög ánægð með þessa niðurstöðu en úrskurður héraðsdóms skapi Landsbanka Íslands svigrúm og traustan grundvöll til að ná fram því markmiði að hámarka verðmæti eigna bankans til hagsbóta fyrir kröfuhafa hans. Skilanefndin muni hafa náið samstarf við kröfuhafa um framvindu mála.”
Áframhaldandi greiðslustöðvun Landsbanka Íslands hefur engin áhrif á starfsemi NBI hf.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















