Segir eignir sínar ekki tengjast svikum Madoffs
Ruth Madoff, eiginkona svikahrappsins Bernard Madoff, segir að íbúðin hennar á Manhattan, 45 milljónir dollara í skuldabréfum og 17 milljónir dollara í reiðufé tengist á engan hátt svikum eiginmanns hennar.
Dómarinn Louis Stanton, sem hefur til meðferðar mál bandaríska verðbréfaeftirlitsins (SEC) gegn Bernard Madoff kvað upp úrskurð í gær þar sem hann breytti skilmálum eignafrystingar Bernard Madoff þar sem hann vísaði í staðhæfingu Ruth Madoff um að sumar eignir hennar væru aðskildar eignum Bernards Madoff.
Lögmenn Bernards Madoff segja að eiginkona hans sé skráður eigandi íbúðar á Manhattan, skuldabréfanna og um það bil 17 milljóna dollara í reiðufé. Saksóknarar í málinu hafa ekki skilað inn beiðni um að fasteignir hans verði gerðar upptækar. Áður en það yrði gert vildu þeir og Bernard Madoff sjálfur, fá heimild réttarins til að breyta skilmálum gildandi úrskurðar um frystingu eigna svo hann geti afsalað sér sínum eigin eignum. Fjármálastjórinn hans hefur samþykkt að afhenda fyrirtækið hans, fasteignir þess og listaverk og muni sem voru í eigu fyrirtækisins, Bernard L. Madoff Investment Securites LLC, að því er fram kemur á fréttavef Bloomberg.
Svikamyllan
Bernard Madoff var handtekinn hinn 11. desember sl. í íbúð sinni á Manhattan eftir að hafa viðurkennt að hafa í gegnum fyrirtæki sitt notað nýtt fjármagn til að greiða gömlum fjárfestum í svikamyllu sem er talin sú umfangsmesta í sögu Wall Street. Ef Madoff verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Madoff, sem er laus vegna 10 milljóna dollara tryggingar, hefur verið skipað að halda kyrru fyrir í íbúðinni sinni í stofufangelsi.
Stanton tók ekki afstöðu til kröfu Ruth Madoff um að hún ætti 45 milljónir dollara í skuldabréfum og 17 milljónir dollara í reiðufé í Wachovia bankanum. Dómarinn féllst jafnframt á þá kröfu saksóknara í málinu að frystingin næði áfram til íbúðar á Manhattan og fasteigna í Montauk, New York og Palm Beach á Flórída.
Cohmad Securities, sem er sjóður sem geymir skuldabréf sem Ruth Madoff kveðst eiga, hafði aðsetur í höfuðstöðvum fyrirtækis eiginmanns hennar á Manhattan. Fyrirtækið var að hluta til í eigu Bernard Madoff og verðbréfaeftirlitið í Massachusetts segir það hafa „matað“ fjárfestingarfyrirtæki hans með reiðufé. Í síðusta mánuði tilkynntu yfirvöld í Massachusetts að Ruth Madoff hefði tekið út 15,5 milljónir dollara úr Cohmad Securities í nóvember og desember, þ.á.m 10 milljónir dollara sama kvöld og eiginmaður hennar var handtekinn fyrir fjársvik.
Ruth Madoff hefur ekki verið sökuð um hlutdeild í svikum eiginmanns síns.



















