Viðskipti
| mbl
| 3.3.2009
| 17:39
Semja um uppgjör krafna
Landsbanki Íslands og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hafa gengið
frá samkomulagi um uppgjör krafna í milli bankanna þ.m.t. kröfum vegna
peningamarkaðslína, lána, afleiðustaða, skuldabréfa og ábyrgða.
Samkvæmt tilkynningu felur uppgjörið í sér skuldajöfnun og yfirfærslur eigna frá Straumi til Landsbankans. Samningurinn hafi ekki efnisleg áhrif á rekstrarreikning Straums og engin áhrif á lausafjárstöðu bankans. Hins vegar minnka heildareignir Straums um u.þ.b. 200 milljónir evra og hækkar eiginfjárhlutfall um tæp 2%.
Í tilkynningunni segir, að samningur þessi sé í samræmi við stefnu Straums um að draga úr stærð efnahagsreiknings bankans og heildaráhættu í rekstri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















