Tæplega 3,5 milljón Spánverja án atvinnu
Alls fjölgaði atvinnulausum um rúmlega 150 þúsund á Spáni í febrúar og eru tæplega 3,5 milljón Spánverja nú án atvinnu. Hefur atvinnuleysi aukist um rúmlega 10% á síðustu tveimur mánuðum og 50% á einu ári. Þrátt fyrir að hægt hafi á nýskráningum á atvinnuleysisskrá í febrúar miðað við janúar eiga sérfræðingar von á að atvinnuleysi eigi eftir að aukast enn frekar á Spáni á næstunni.
Á vef BBC kemur fram að því sé spáð að um fjórar milljónir Spánverja verði án atvinnu á þriðja ársfjórðungi. Samkvæmt opinberum tölum eru 3,48 milljónir Spánverja nú án atvinnu og hafa þeir ekki verið jafn margir síðar árið 1996. Hvergi í ríkjum ESB mælist atvinnuleysi jafn hátt og á Spáni. Í árslok 2008 mældist það 13,9%. Samkvæmt spá framkvæmdarstjórnar ESB má gera ráð fyrir því að atvinnuleysi haldist áfram að aukast á Spáni og það mælist 16,1% á næsta ári og 18,7% árið 2011.



















