Viðskipti
| Morgunblaðið
| 4.3.2009
| 5:30
| Uppfært
7:23
Baugskynning þótti villandi
Kynning Baugs Group fyrir smærri kröfuhafa á föstudaginn í síðustu viku um stöðu félagsins var lítið upplýsandi. Það er mat fulltrúa þriggja kröfuhafa sem sátu fundinn, sem Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, og Stefán Hilmarsson stýrðu.
Á fundinum var miðað við stöðu Baugs um síðustu áramót. Síðan þá hafa stjórnendur félagsins misst úr aski sínum BG Holding í Bretlandi, M. Holding í Danmörku og nú síðast Mosaic Fashion. Sú kynning sem sýnd var kröfuhöfum var því villandi að mati viðmælenda sem eru ósáttir. Gögnin voru lítið sundurliðuð og erfitt að átta sig á raunverulegri stöðu félagsins.
Smærri fjármálafyrirtæki hafa sent skilanefnd Landsbankans bréf þar sem óskað er formlega eftir að hún falli frá greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi. Því hefur verið hafnað af Landsbankanum.
Beiðni Baugs um áframhaldandi greiðslustöðvun í þrjá mánuði verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Líklegra er að beiðnin verði samþykkt. bjorgvin@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















