Viðskipti
| Morgunblaðið
| 4.3.2009
| 5:30
| Uppfært
7:26
Framtíð Senu ræðst væntanlega í dag
Bindandi tilboðum í Senu, dótturfélag Íslenskrar afþreyingar (ÍA), var skilað inn í gær. Stjórn ÍA fjallaði um tilboðin á fundi í gær og mun gera það aftur í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun niðurstaða líklega liggja fyrir fyrir hádegi í dag, en ekki fengust upplýsingar um hve mörg tilboð bárust í fyrirtækið.
Íslensk afþreying hét áður 365 hf., en Sena er umboðs- og dreifingaraðili fyrir erlenda tónlist og tölvuleiki, útgefandi að íslenskri tónlist auk þess sem félagið á fjögur kvikmyndahús.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















