MP Banki enn mótfallinn greiðslustöðvun Hansa
eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
MP banki er eini kröfuhafi Hansa ehf., eiganda enska knattspyrnufélagsins West Ham, sem er mótfallinn því að félagið fái framlengingu á greiðslustöðvun sinni. Þetta kom fram á fundi með kröfuhöfum á mánudagsmorgun, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Greiðslustöðvun Hansa rennur út á föstudag og þegar liggur fyrir að forsvarsmenn félagsins muni sækjast eftir framlengingu á henni. Flestir kröfuhafa Hansa, sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, eru önnur félög í eigu hans sjálfs. Eina eign Hansa er enska knattspyrnufélagið West Ham United.
Ásgeir Friðgeirsson, varaformaður stjórnar West Ham, segir að þrátt fyrir erfiðleika á alþjóðamörkuðum þá sé vaxandi áhugi á West Ham. „Það er áhugi hjá mörgum fjárfestum og það væri öllum kröfuhöfum til hagsbóta ef það væri hægt að fylgja því ferli eftir með sölu á West Ham United. Það er erfitt að segja til um verðmæti félagsins, enda er þetta markaðsvara. En fyrir síðustu viðskipti með enskt úrvaldsdeildarfélag, sem var Manchester City í ágústmánuði, fengust 230 milljónir punda. En veröldin hefur breyst mikið síðan þá og við erum ekki með væntingar í þá veru.“



















