Viðskipti
| Morgunblaðið
| 4.3.2009
| 5:30
| Uppfært
7:22
Semja um kröfur
Landsbankinn og Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hafa samið um uppgjör krafna á milli bankanna, þar með taldar kröfur vegna peningamarkaðslína, lána, afleiðustaða, skuldabréfa og ábyrgða, samkvæmt tilkynningu frá Straumi.
Uppgjörið felur sér í skuldajöfnun og yfirfærslur eigna frá Straumi til Landsbankans. Samningurinn hefur ekki efnisleg áhrif á rekstrarreikning Straums samkvæmt tilkynningunni og engin áhrif á lausafjárstöðu bankans. Hins vegar minnka heildareignir Straums um u.þ.b. 200 milljónir evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















