Sena seld til Garðarshólma
Sena á og rekur meðal annars Smárabíó mbl.is/Golli
Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur, að undangengu formlegu söluferli, gengið að tilboði Garðarshólma rekstrarfélags í öll hlutabréfin í Senu. Tilboðið, sem er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, metur heildarvirði Senu á 500 milljónir króna.
Engar skuldir yfirteknar
Garðarshólmi, sem er í eigu Jóns Diðriks Jónssonar og Magnúsar Bjarnasonar, yfirtekur engar skuldir frá Íslenskri afþreyingu við söluna.
Straumur fjárfestingabanki hf. annaðist formlegt söluferli á Senu. Söluferlið hófst í janúar s.l. og óskuðu þá 20 aðilar eftir formlegri þátttöku. Átta aðilar skiluðu inn óskuldbindandi tilboðum í félagið fyrir 5. febrúar s.l. Í framhaldinu var gengið til viðræðna við þá er höfðu lagt fram hagstæðustu tilboðin en frestur þeirra til að skila inn bindandi tilboði rann út í gær, samkvæmt tilkynningu.
Íslensk afþreying hét áður 365 hf., en Sena er umboðs- og dreifingaraðili fyrir erlenda tónlist og tölvuleiki, útgefandi að íslenskri tónlist auk þess sem félagið á fjögur kvikmyndahús.
Sena rekur verslanir Skífunnar og kvikmyndahúsin Smárabíó, Háskólabíó, Regnbogann og Borgarbíó Akureyri.
Gert er ráð fyrir aðkomu Björns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Senu og lykilstjórnenda í kaupunum.
„Jón Diðrik Jónsson mun verða stjórnarformaður félagsins en hann hefur langa reynslu af neytendamarkaðsmálum í gegnum stjórnunarstörf hjá Coca-Cola í Asíu og Evrópu og sem forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar," samkvæmt tilkynningu.




















