Viðskipti
| The Daily Telegraph
| 4.3.2009
| 15:04
Þúsundir bíða enn eftir endurgreiðslu frá Kaupþingi
Tæplega fimm þúsund breskir sparifjáreigendur hafa ekki enn fengið greiddar út innistæður sínar í dótturfélagi Kaupþings í Bretlandi, Singer & Friedlander, fimm mánuðum eftir fall bankans. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingasjóði innistæðueigenda þar í landi (Financial Services Compensation Scheme) hafa um 2.200 viðskiptavinir Singer fengið greiddar út innistæður sínar. Alls áttu þeir inni 32 milljónir punda inni á reikningum hjá Singer. Þetta kemur fram á vef Telegraph.
FSCS staðfestir við Telegraph að tafir hafi orðið á endurgreiðslum til viðskiptavina Kaupþings í Bretlandi en það tengist upplýsingakerfi bankans sem sé þannig uppbyggt að FSCS þarf að fara yfir allar upplýsingar sem berast frá bústjóra bankans til að tryggja að allir fái rétta fjárhæð til baka.
Alls áttu um sjö þúsund sparifjáreigendur innistæður á reikningum Singer & Friedlander þegar bankinn fór í þrot í október í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















