Uppsagnir í farvatninu hjá Opel
Þýski bílaframleiðandinn Opel, sem er í eigu bandaríska bílaframleiðandans General Motors, þarf jafnvel að segja upp 3.500 starfsmönnum komi ekki til stuðnings frá stjórnvöldum. Ákveðið hefur verið að lækka laun starfsmanna og í viðtali við Bild Zeitung, varar forstjóri GM í Evrópu, Carl-Peter Forster, við því að félagið muni grípa til uppsagna. Vonast hann til þess að ekki þurfi að segja upp fleiri en 3.500 starfsmönnum.
General Motors, sem hefur þegar beðið bandarísk stjórnvöld um 30 milljarða dala lán, á í viðræðum við þýsk stjórnvöld um hvernig hægt sé að bjarga dótturfélaginu í Þýskalandi en hjá Opel starfa tæplega 26 þúsund manns.
GM er einnig í viðræðum við stjórnvöld í Belgíu, Bretlandi og Spáni þar sem Opel er með verksmiðjur.
Forster sagði í viðtalinu við Bild að félagið þyrfti á 3,3 milljörðum evra í formi lána eða hlutafjár fyrir árið 2014 svo hægt sé að halda starfsemi félagsins áfram í þessum löndum.



















