Viðskipti
| mbl
| 5.3.2009
| 7:29
Barclays útskýri hvað varð um 3,3 milljarða dollara
Skilanefnd bandaríska bankans Lehman Brothers krefur nú breska Barclays bankann um skýringar á hvað hafi orðið um 3,3 milljarða dollara sem eyrnamerktir voru bónus- og ábyrgðagreiðslum þegar Barclays tók yfir hluta Lehman á síðast ári.
Mikil spenna er að sögn Financial Times milli kröfuhafa Lehman Brothers og Barclays, sem tók yfir hluta Lehman fyrir 1,5 milljarð dollara í kjölfar gjaldþrotsins.
Ákvörðun Alvarez & Marsal, fyrirtækisins sem sér um gjaldþrotaskiptin, að krefja Barclays um skýringar er talin geta valdið deilum um bónusgreiðslur til háttsettra starfsmanna Lehman sem voru störfuðu áfram hjá fyrirtækinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















