Viðskipti
| Morgunblaðið
| 7.3.2009
| 7:30
MP vill Hansa ehf. í þrot
Beiðni Hansa ehf., eiganda enska knattspyrnuliðsins West Ham United, um áframhaldandi greiðslustöðvun var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Einn kröfuhafa félagsins, MP banki, lagði fram mótmæli og vill að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Dómari hefur sjö daga til að komast að niðurstöðu. Hansa ehf. er í eigu Björgólfs Guðmundssonar og hefur verið í greiðslustöðvun frá því í desember. Flestir kröfuhafar Hansa eru félög í eigu Björgólfs sjálfs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















