Bakkavör áminnt og gert að greiða févíti
Lýður Guðmundsson Golli Kjartan Þorbjörnsson
Kauphöll Íslands hefur ákveðið að áminna Bakkavör Group opinberlega og beita févíti þar sem félagið braut gegn reglum kauphallarinnar meðal annars með ummælum stjórnarformanns Bakkavarar, Lýðs Guðmundssonar, í sjónvarpsviðtali sem gætu haft áhrif á verð félagsins án þess að birta upplýsingarnar í Kauphöll Íslands fyrst. Er Bakkavör gert að greiða 2,5 milljón króna í févíti.
Þann 27. október sl. færði Kauphöllin hlutabréf Bakkavarar á Athugunarlista sökum óvissu varðandi fjárhagslega stöðu félagsins og verðmyndun fjármálagerninga þess.
Taldi Kauphöllin að upplýsingar sem komið höfðu fram í ummælum stjórnarformanns félagsins í sjónvarpsviðtali teldust verðmótandi. Þar sem upplýsingarnar voru ekki birtar opinberlega var talin hætta á ójafnræði meðal fjárfesta varðandi aðgang að upplýsingunum.
Upplýsingarnar vörðuðu ákvæði í lánasamningi Bakkavarar sem stjórnarformaður félagsins sagði veita lánveitendum félagsins heimild til gjaldfellingar ef breytingar yrðu á stjórn Exista hf., stærsta eiganda hlutafjár í Bakkavör, án samþykkis lánveitenda Bakkavarar. Einnig kom fram að ef fall íslensku bankanna myndi leiða til falls Exista hf. gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir Bakkavör.
Telur Kauphöllin að upplýsingar um fyrrgreind tengsl við Exista hf., vegna ákvæða lánasamningsins, og möguleg áhrif á Bakkavör séu til þess fallin að hafa marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa félagsins. Hafi félaginu því verið skylt að birta án tafar opinberlega upplýsingar um ofangreind atriði. Enn fremur verður að telja alvarlegt brot á reglum Kauphallarinnar að Bakkavör hefur ekki birt upplýsingar um framangreind atriði, þrátt fyrir að fjármálagerningar félagsins hafi verið færðir á Athugunarlista, að því er fram kemur á vef Kauphallar Íslands.
Kauphöllin telur ljóst að félagið hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt reglum Kauphallarinnar þar sem gert er ráð fyrir að allar verðmótandi upplýsingar séu birtar eins fljótt og unnt er. Upplýsingarnar hefði átt að birta opinberlega um leið og ljóst var að þær væru til þess fallnar að hafa marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa útgefanda og í allra síðasta lagi áður en þær komu fram í umfjöllun stjórnarformanns félagsins í fyrrgreindu sjónvarpsviðtali.



















