Viðskipti
| mbl
| 9.3.2009
| 14:27
Fall Straums hefur áhrif á Úrvalsbréf Landsbankans
Landsvaki, rekstrarfélag verðbréf- og fjárfestingasjóða Landsbankans , vill
taka fram að yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi - Burðarás
Fjárfestingarbanka mun ekki hafa áhrif til gengislækkunar á neinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum rekstrarfélagsins öðrum en Úrvalsbréfum Landsbankans.
Yfirtakan hefur áhrif á til lækkunar á gengi Úrvalsbréfa en hlutabréf Straums námu u.þ.b. 10% af sjóðnum. Gengi sjóðsins hefur nú þegar verið lækkað sem nemur hlutabréfeign hans í Straumi, að því er segir í tilkynningu frá Landsvaka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















